Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 800, 128. löggjafarþing 447. mál: skipulag ferðamála (afnám Ferðamálasjóðs).
Lög nr. 156 19. desember 2002.
Frá og með 1. janúar 2003 yfirtekur ríkissjóður allar eignir og skuldir Ferðamálasjóðs. Byggðastofnun er falið að sjá um innheimtu á útlánum sjóðsins. Innköllun til lánardrottna Ferðamálasjóðs skal eigi gefin út. Umboð stjórnar sjóðsins fellur niður frá sama tíma.
Þingskjal 800, 128. löggjafarþing 447. mál: skipulag ferðamála (afnám Ferðamálasjóðs).
Lög nr. 156 19. desember 2002.
Lög um breytingu á lögum um skipulag ferðamála, nr. 117/1994, með síðari breytingum.
1. gr.
C-liður 1. mgr. 8. gr. laganna fellur brott.2. gr.
IV. kafli laganna, Ferðamálasjóður, fellur brott.3. gr.
Við lögin bætist ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:Frá og með 1. janúar 2003 yfirtekur ríkissjóður allar eignir og skuldir Ferðamálasjóðs. Byggðastofnun er falið að sjá um innheimtu á útlánum sjóðsins. Innköllun til lánardrottna Ferðamálasjóðs skal eigi gefin út. Umboð stjórnar sjóðsins fellur niður frá sama tíma.
4. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2003.Samþykkt á Alþingi 13. desember 2002.